föstudagur, júní 09, 2006

Did you ever know that you´r my hero.

Wooooooooooooooowwwww. Það er þá mynd í lagi!!!
Lilja systir hakkaði sig inná kerfið mitt og setti þessa líka svakalegu mynd. Jæja ég veit þó að það er hægt að setja myndir og geri það kannski þegar ég kem heim frá Man.
***
Púffff talandi um Manchester, er að fara í dag...bara á eftir 5 klst legg ég af stað til keflavíkur. Já hjartað er farið að slá örar og klósettferðir eru mun tíðari en gengur og gerist!!! Fórum smá "rúnt" í gær til Ólafsfjarðar. Ólafur verður það hjá ömmu sinni og afa meðan ég er úti því Ásgeir er að vinna. Greyið kallinn að vera einn heima. Ef einhver vill bjóða honum í mat endilega ekki hika!!! ;) En já þetta var hvaaa rétt 10 tíma rúntur. Stoppuðum og fengum kvöldmat og brunuðum í bæinn aftur.
***
Jæja ég þarf að fara að pakka betra að vera búin að því.
Hlakka til ap blogga eftir helgi...þið verðið að afsaka ef það eru mikið af villum ég er orðin svo skjálfhennt að ég hitti kannski ekki alltaf á rétta takka!!!

Bless bless:
HH flughetja

þriðjudagur, júní 06, 2006

Love is like a butterfly.

Pæliði í því ef áskorunin væri enn í gangi...ég hef ekki skrifað núna í smá tíma og hef hreinlega ekkert að skrifa um. Jahhh og þó!
***
Einhverjir voru nú forvitnir eftir síðustu færslu og hringdu bara í mig...alltaf sama forvitnin í þessum Íslendingum. Þannig að auðvitað sagði ég öllum :)
Já við hjónaleysin ákváðum í síðustu viku að gifta okkur. Gengur ekki að lifa í synd um aldir alda. Erum nú samt sem áður típískir Íslendingar, fyrst barn, svo hús svo gifting. Alveg þveröfugt við allt sem kristið telst!! En Ásgeir mun endanlega festa kaup á mér þann 12 ágúst 2006. Hann bað nú föður minn ekkert formlega um hönd mína en þau komust víst að samkomulagi um það að fyrst Ásgeir er búinn að vinna hjá þeim í þennan tíma þá fer eignarrétturinn sjálfkrafa yfir á hann. Ég er nú dáldið fúl með það að hann er bara búinn að vinna þarna í hvaaa um 3 ár og á mig...hélt ég væri dýrari en það. Hummmm kannski er það málið...ég hef verið dýr í rekstri og foreldrarnir eru fegnir að losna við það allt, jahhh hver veit??
***
Svo er það Manchester eftir 3 daga *shitttthjartaðíbuxunum* Ég hlakka voða til að vera komin út en leiðin þanngað heillar mig ekki. Sem sagt flugleiðin. Já það eru margir sem horfa hissa á mig þegar ég segist vera flughrædd, en þannig er það nú bara samt. Er hætt að sofa á nóttini útaf þessu og hreinlega líður illa. Ég reyna að nálgast eitthvað róandi fyrir ferðina svo ég hreinlega endi ekki eins og Silvía Nótt í einhverju taugaáfalli!! Ég ætla ekki einu sinni að nefna alla þá hluti sem ég er farin að gera, þið yrðuð bara hneyksluð!! ;)
***
Annað er nú ekki merkilegt í fréttum á þessum bænum. Ég er komin í sumarfrí og fíla það fínt. Já það eru 2 góðar ástæður fyrir því að vera kennari...júní og júlí :)
***
Jæja áður en ég fer að poppa útúr mér fleiri lélegum kennarabröndurum er eins gott að hætta bara hér og nú.
Ef ég skrifa ekki meira fyrir Man ferðina þá þakka ég ykkur lesendur góðir fyrir að nenna að lesa þetta raus í mér alltaf hreint.
***
Elskið hvert annað ætíð.
HH