laugardagur, júlí 31, 2004

All over the world to night!!

Það er laugardagur og verslunnarmannhelgin er gengin í garð. Ég sit nú bara hér í Kópavoginum og hef það náðugt meðan þorri landsmanna drekkur frá sér vit og rænu.
Ég skrapp í Múlakot í dag, þar voru flugmenn og velunnarar flugsins samankomin. Fámenn hátíð en örugglega góðmenn...annars eru þessir flugmenn og konur fólk úr öðrum ættbálki!!

Kalli kom hér í mat í gær, já kall greyið einn heima og því ákvað ég nú að bjóða honum í mat, því eins og frægt er orðið héldu þeir mér uppi ef ég var ein heima í "denn tíð". Ásgeir grillaði hambó og svo var hakkað í sig sælgæti. Nú einnig var svi þessi síða mín löguð lítillega og á ég Kalla mikið að þakka þá hjálp.

Annað er ekkert...
...vonum að allir njóti helgarinnar og hafi það sem allra best...og munið að keyra rólega og ekki undir áhrifum!!

fimmtudagur, júlí 29, 2004

Velkomin aftur hingað!

Já ég hef ákveðið mig...vonandi endanlega að vera hér...jááá fólk.is var ekki að henta mér og uppsetning vefsins ekki minn stíll.

Hér hafa aftur á móti verið gerðar miklar breytingar og þarf ég að kynna mér það nánar áður en ég blogga meira...

Fylgist með og látið vita hvernig ykkur líka þetta allt saman hjá mér....huhummmjááá´þegar ég er búin að koma commentakerfinu í lag!!