fimmtudagur, ágúst 01, 2002

Jæja þá er verslunarmannahelgin að ganga í garð. Sumir skella sér á útihátíðir, rúlla blindfullir í drullusvaði á meðan aðrir sitja heima og hafa það notalegt. Ég ætla hinsvegar að skella mér í Skötufjörð og hafa það notalegt í faðmi fjalla blárra og náttúrulega í faðmi fjölskyldunnar.
Á morgun er föstudagur og ég mæti í vinnu 7:30. Brjálað að gera enda löng helgi og lyf nauðsynjavörur yfir svona brjálaða helgi. Vona að allir hafi það gott um helgina. Sæl að sinni.

mánudagur, júlí 29, 2002

Jæja hvernig finnst ykkur svo nýja "lúkkið" á síðunni minn? Endilega látið mig vita með því að skrifa í gestabókina mína.
Svo verð ég nú að þakka Kalla fyrir alla hjálpina við þetta. Kenna mér að html-a. Þetta er bara svaka gaman, ég held ég hætti við að fara að prjóna. Þetta er miklu meira dúllerídúll!!!