mánudagur, mars 26, 2007

Ferðasaga.

Tími komin á blogg og það ferða/tónleika blogg.
***
Eftir að hafa verið heima hjá mér helgina fyrir ferðina með hjartað í buxunum og tárin í augunum kom sá dagur að út skildi halda. Fórum snemma uppá völl...meira að segja mjög snemma en hvað um það. Ég róaðist öll og svo var kallað um borð. Hjartað sló örar en nokkru sinni og vélinni var bakkað frá. Skrítið hljóð heyrðist og ég lét ferðafélaga mína vita að flugstjórinn hefði nú örugglega gleymt að taka handbremsuna af. Vélin stoppar og aftur að rampi. Flugstjóri: "svo virðist sem startari hafi farið í hægri mótor og mun verða litið á það" Jeiii alltaf bila þessar rellur þegar ég fer í þær!! Jæja skipt var um startara og því þurfti ekki að hand trekkja vélina í gang. Flugið gekk áfallalaust fyrir sig og vona ég að engin hafi fengið salmonellu sýkingu af frosna kjúkklingnum sem boðið var uppá!!
***
Nenni ekki að skrifa ýtarlega ferðalýsingu en tek heldur hápunkta ferðarinnar.
Tilgangurinn á öllu þessu útstáelsi var auðvitað að hitta og hlutsa á drottinguna Dolly Parton. Good golly there´s no one quite like Dolly segi ég nú bara. Eftir að hafa látið fólk bíða í litlar 10 mínútur eftir sér mætti goðið sjálft á svið í glimmer "outfitti" ég er viss um að hún sjáist úr geimnum þó lítil sé, svo mikið styrnir á hana. Hún tók auðvitað öll sín bestu lög eða jahh sín þekktustu lög eins og 9-5, Joline og Islands in the stream. Við fengum frábært sæti og reyndi ég að smella af nokkrum myndum þrátt fyrir að búið væri að hóta Kalla að myndavélin yrði tekin ef myndað yrði! Ég er búin að setja nokkrar hingað og tónbrot líka ;). Ég hef alltaf vitað að Dolly er bráðskmmtileg týpa og hún reytti af sér brandarana og gellan hefur sko húmor fyrir sjálfri sér. Þakkaði öllum fyrir að kaupa miða á þessa rándýru tónleika og fullvissaði gesti um að hún þyrfti sko á þessum peningum að halda því það kostar sko fúlgur að líta svona út eða eins og mig minnir að hún hafi orðað það "It costs a fortune to look this cheap". Svo tjáði hún okkur að það væri ekkert ekta við hana nema hjartað hennar. Það held ég að sé nú alveg rétt hjá henni því hún lítur ekki út eins og rúmlega sextug kella frá Tenesee!
***
Fyrst byrjað var á tónleikaferð varð ég bara auðvitað að gera mér ferð til Liverpool og tékka á Bítlasafninu. Frábært safn, enda frábærir fjórmenningar sem eiga stórann þátt í poppsögu heimsins. Svo var minjagripabúð að safni loknu og auðvitað var smá keypt þar!
***
Í ferðinni var MIKIÐ verlsað og þó fékk ég ekki "heavy" skæran miða á ferðatöskuna mína eins og sumir hahahahaahahaaaa!! En ég fæ samt örugglega heavy VISA reikning :( en það er seinni tíma vandamál!!
Borðar var á sig gat alla daga, lappirnar gengnar uppað herðum og gott ef það bættust ekki smá vöðvar á handleggina eftir alla pokana! Finnst eins og Ásgeir sé með aðeins stæltari upphandleggsvöðva ;)
***
Þetta var nú svona ferðin í grófum dráttum. Frábær ferð og frábær félagsskapur.
P.S. bara svona að minna ykkur á að kvitta svo ég nenni að halda áfram að skrifa ;)
Halldóra öll ekta.

6 Comments:

At 5:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta hefur verið æðisleg ferð...en talandi um þennan "heavy" miða þá fékk ég svoleiðis núna á leið til Ísafjarðar!!! hahaha!!

En vonandi kemuru vestur um páskana mín kæra ;)

Knús,
Kristín.

 
At 10:40 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ég fékk þennan helvítis heavy miða - það var nú bara af því að taskan sjálf er svo þung!

Skemmtilegur pistill, enda skemmtileg ferð, takk fyrir hvorutveggja :)

 
At 10:48 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim! Kv. Frá hinni þvottekta EvuHlín

 
At 1:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Þetta hefur verið skemmtileg ferð. Alltaf gaman að strauja vísakortið í búðum ;)

Kv Elfa

 
At 3:26 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Frábært að þú hafir skemmt þér svona vel (og þið öll).
Ég er ekkert smá stollt af þér að fara flug þrátt fyrir flughræðsluna.
Við þurfum að fara að mæla okkur mót á skype'inu...Hvenær er besti tíminn fyrir þig??
Ég horfði á video klippurnar frá tónleikunum, greinilega alveg magnað.
Knús, Kristrún

 
At 5:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin heim skvís - þetta hefur greinilega verið algjör snilld hjá ykkur! Ég datt inná brúðkaupsmyndirnar ykkar þegar ég fór að skoða og þær eru ekkert smá æðislegar! Awwwwwww...sæta gifta frú!
Knús,
Anna Brynjan sem-lifir-í-synd...!!

 

Skrifa ummæli

<< Home