þriðjudagur, janúar 30, 2007

nammi gott í dag!!

Bloggaði ekkert í gær og svei mér þá ef ég er ekki með fráhvarfseinkenni! Þakka kærlega fyrir öll kommentin. Váá 10 komment held að það sé met hjá mér ;)
***
Er þá ekki málið að hendi inn eins og einni uppskrift? Þetta er réttur sem er svakalega fljótlegur og rosalega góður. Ég tala nú ekki um ef þið eruð fyrir indverskan mat og að auki er hann mjöööög hollur :)
***
Indverskur kjúklingabaunaréttur.
Hráefni:
1 stk laukur
1 hvítlauksrif
1 stk ferkst chili
2cm engiferró
2-3 msk milt karrímauk (ég kaupi alltaf frá patak´s og það stendur á því mild curry paste) flaskan af því dugar í marga marga svona rétti :)
1 msk olífuolía
1 stk blómkálshaus (lítill)
1 krukkar kjúklingabaunir eða um 400 gr. (stundum til að gera kallinn glaðan þá set ég bara venjulegan kjúkling og sker hann í litla bita og steiki fyrst á pönnu)
1 dóskókosmjólk (400ml)
100 gr grænar sykurbaunir (það er svona grænt og langt og baunir inní því)
2 stk tómatar
smá sjávarsalt og ný malaður pipar
ferskt kóríander.
Þá er komið að því hvernig maður fer að! Laukurinn er skorinn í fernt chili í tvennt og fræin tekin úr. Afhýða engiferrótina og skera tómata í bita.
Svo er matvinnsluvélin dregin fram (ég hendi þessu bara í blandarann þar sem ég á ekki matvinnsluvél) og í hana hendum við lauknum, hvítlauknum, chili, engiferrótinni og karrímaukinu og maukum þetta vel.
Svo hitum við olíu á pönnu og setjum maukið á í um 2 mín og pössum að það brenni ekki. Svo hendum við blómkáli kjúllabaununum og kókosmjólk á pönnuna líka og hrærum þessu vel saman. Svo bætum við sykurbaununum og tómötunum útí og látum þetta malla allt saman vel á pönnunni svo er bara að setja smá salt og pipar útí eftir smekk.
Svo er koríander sett yfir en það má alveg sleppa vví.
***
Þetta er uppskriftin en auðvitað má nota hvaða grænmeti sem er og oft hef ég bara hent því sem til er í ísskápnum hjá mér, nota líka oft blandað frosið grænmeti. Maukið er í raun grunnurinn þannig að hann er nánast aðalatriðið. Svo er rosa gott að hafa með þessu naan brauð hrísgrjón og salat eða bara brauð og salat og drekka með ííískalt vatn með sítrónu útí ;)
***
Veit að bloggið í dag er ekkert krassandi eða spennandi en vona að einhver geti nýtt sér það :) Svo væri frábært að heyra frá einhverjum sem hefur kannksi prófað. Og endilega látið vita ef þið viljið fleiri uppskr því ég luma á þeim nokkrum ;)
Kv
HH

9 Comments:

At 7:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mmmmm hljómar vel sko.....prufa þetta við tækifæri :) Og já endilega til í fleiri hollar uppskriftir :)

Kv kristín.

 
At 1:13 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mmmm...Ég fæ vatn í munninn. Kanski ég prófi þetta um helgina.

Komdu svo með buffið næst, mig hefur alltaf langað að læra að gera svoleiðis.

Knús, Kristrún

 
At 9:20 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Líst vel á þetta, mun örugglega prófa þetta. já og fleiri uppskriftir takk....þú lumar greinilega á einhverju fleiru gómsætu.

kv. Sigga

 
At 2:38 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Nammi namm ekkert smá girnó! Elska indverskan og ekki skemmir fyrir að bjóða með gúrkujógúrtsósu sem er sjúklega mikilvæg með indverskum!
---------
Hrein jógúrt og sýrður rjómi (50/50)
Fullt af niðurskorinni gúrku
Karrí
----------
Mana þig til að hafa þetta með næst!
Knús Anna Brynja

 
At 10:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ætli það sé hægt að fá þennan rétt í 1944 matarbakka seríunni?? hmmmm.... ætla að athuga það ;o)hehe

 
At 4:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Voooó.. ég er búin að slefa yfir allt takkaborðið mitt og það er farið að rjúka úr tölvunni :o

Eins gott þú bjóðir mér í mat einhverntímann í skaðabætur ;o) hehehe

 
At 9:18 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já segiði sko...Halldóra næsti saumó bara þá leyfiru okkur að smakka ;)

Kv Kristín.

 
At 10:23 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jæja, verslaði allt í réttinn í dag og er að fara elda Indverska kjúlla réttinn núna. Var að enda við að lesa aftur yfr aðferðina svo ég geri nú rugglega allt rétt. Hlakka ekkert smá til að smakka á þessum djúsí rétti. Kærar þakkir fyrir hummus uppskriftirna líka, mun pottétt prufa það um helgina.

Knús, Kristrún

 
At 10:14 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Jæja á ekkert að koma með fleiri uppskriftir???

Kv kristín.

 

Skrifa ummæli

<< Home