miðvikudagur, nóvember 01, 2006

Oh! Darling

Góðan dag kæru lesendur til sjávar og sveita.
***
Þá er 1.nóv kominn og styttist því óðum til jóla. Ég er búin að kaupa 2 jólagjafir, ætla að vera tímanlega í ár svo ég geti notið aðventunnar, bakað og haft kósý heima. Önnur jöfin sem ég keypti er ég búin að opna og nota og ætla því ekki að gefa hana!! Æjjjj mig langaði bara svo í hana. En já nóg um jólin. Ég er ekki komin í neinn jólaham og ætla því ekki að eyða púðri í það núna.
***
Ég er búin að kaupa mér miða á Dolly Parton í Manchester á næsta ára :) Jiiii hvað ég hlakka til. Það fer að verða síðast séns fyrir mig að sjá "ædolin" mín á sviði því þetta er allt orðið svo hund gamallt. Svo er ég búin að gefa það út að ef Paul fer að fara í túr þá fer ég, þó svo að það væri Asíu túr þá mæti ég ;)
***
Tatarararraaa eldhúsið kemur líklega til okkar á morgun :) þá verður því hennt upp. Tek myndir til að sýna ykkur sem ekki komast svo auðveldlega til mín í heimsókn já og líka fyrir ykkur hin sem komið samt aldrei ;)
***
Var heima í gær með Ólaf veikan heima. Ekki gaman, hann gubbaði alla nóttina og var slappur. En þetta gekk yfir á sólahring og mættum við til vinnu og leikskóla í morgun.
***
Hef frá engu að segja og kveð því að sinni.
HH