föstudagur, janúar 27, 2006

Felice anno nouvo

Gleðilegt ár allir saman! Já þið tvö sem kíkið hérna annað slagið!!!

Þá er árið 2006 eins og glöggir lesendur hafi kannksi tekið eftir, annars er tíminn svo fljótur að líða að það er bara enn 1999 jhá mér sko ;)

Árið 2005 var bara fínasta ár og svo ég telji nú svona upp nokkuð skemmtileg atriði eins og virðist vera venja á þessum bloggum þá eru þau svohljóðandi (ekki í neinni röð, því ég er svo fljót að gleyma að ég tel bara það sem ég man)

1. Gellan trúlofaði sig eftir tæplega 5 ára samband
2. Útskrifaðist með háskólagráðu :)
3. Byrjaði í "alvöru" vinnu...en hætti eftir 5 kreisí mánuði!!!
4. Byrjaði í annari vinnu...er hér enn (enda bara 1 mánuður búinn!!)
5. Litla barnið mitt varð 2 og er að verða 3ja núna
6. Keypti nýja íbúð, nýjan bíl og nýtt glæsilegt borðstofusett.
7. Átti skemmtilegt sumar
8. Eyddi fullt af skemmtilegum tímum með mínum frábæru vinum :) og fjölskyldu :)

Þetta ár verður örugglega líka mjög viðburðaríkt...hlakka til.
Annað er nú ekki, er hálf tóm í hausnum enda klukkan bara 10 að morgni og ég í vinnu! Jæja ætla að fara og fá mér morgunmat, maginn farinn að gaula!
GAmana að fá komment í kerfið sitt :)
Þá kannksi að maður verði duglegur að blogga (je right!!!)
bæbæ