fimmtudagur, desember 05, 2002

Þetta er allveg horror litur finnst ykkur það ekki? Jiiii.... en ég er komin með nóg af þessum litum og breyti því síðar. Tékka svona hvernig ykkur líkar við þetta....

HÓLÍ MÓLÍ...................

Það er kveikt á sjónvarpinu og Leiðarljós er í því....ég gæti ekki horft á þetta....fólk fer í pirrurnar mínar og allt voða heimskt og spúggí..... en það er gott að einhverjir horfa, þetta er bara ekki mér að skapi!

Eitthvað erfiðlega virðist ganga hjá mér að setja hana Guðlaugu frænku mína á link hér til hliðar en allavega er hún að blogga eins og svo margir aðrir og á meðan ég rembist við að setja hlekkinn inn þá kíkið þið á hana HÉR

Jahérna það er bara komin desember....
Tíminn flýgur hratt og allt það. Ég var í mínu fyrsta prófi í morgun og var það í LISTIR, MENNING OG MENNTUN.... Hljómar spennó ekki satt??? Reyndar var þetta allveg ágætis próf, slepp vonandi þar. Svo er bara næsta á þriðjudag og er það íslenska.... Ég er nú búin að smíða og skila öllum þeim hlutum sem betur fer.

Ég er nú líka farin að hlakka til jólanna pínku og er reyndar búin að kaupa flestar jólagjafir, þó er eitthvað smá eftir en það verður bar gaman að eiga það eftir þegar maður er komin í jólafrí því ég fer í síðasta prófið mitt 13 des :) Þá verður sko bakað, farið í búðir og fleira spennó.

Annars er ekkert meir að frétta héðan. Úti er allveg brjálað veður og ekki beint eins og við eigum að venjast í desember....úfff hvað ég hef ekkert að segja eða skrifa...

Bless í bili!