fimmtudagur, janúar 11, 2007

Úti er alltaf að snjóa.

Allt að gerast í heiminum í dag. Þorskur að drepast í tonnavís fyrir austan í einhverri eldishví, Becham grrrr flotti foli á leið til USA, haaa bíddu kunna bandaríkjamenn að spila eitthvað annað en ruðning? Nei maður bara spyr sig. Og fíf... Bush að fjölgja hermönnum í Írak.
***
Aftur á móti er ekkert að gerast hjá mér...allavega ekkert sem ég vil deila með ykkur. Fór í vinnu í morgun, reyndar líka í gær, svona til tilbreytinga. ekkert að gerast þar og hefði eins getað verið heima hjá mér að setja í þvottavél eða eitthvað. Veit hreinlega ekki hvort er skemmtilegra. Reyndar þeir sem búa með mér vita allveg að ég elska að setja í vél og ef verið er að leita af mér á heimilinu er alltaf fyrst athugað í þvottahúsið, bankað og kallað ertu heima hjá þér!! Þetta er voða fyndið allt.
***
Helgin er þéttskipuð hjá mér og elska ég að hafa eitthvað að gera. Þrífst ekki í að gera ekki neitt (reyndar kann ég ekki að láta mér leiðast). Er að fara út að borða á morgun með góðum hóp af stelpum. Laugardag skelli ég mér í hádegisleikhús með familíunni jebbb Skoppa og Skrítla here we come!! Svo um kvöldið á styrktartónleika, sem haldnir eru fyrir Tjörva en hann er lítill kútur sem vinkona mín á og greindist hann með krabbamein og er nú í meðferð í Sverge. Þannig að við gellurnar úr Kennó-saumó ætlum að mæta á staðinn og styðja okkar fólk.
***
Það er kominn vetur í borginni. Allt á kafi og ég elska það :) Kannski maður fari út að renna á morgun.
***
Bíllinn okkar er DAUÐUR, alveg svoleiðis stein dauður, borgar sig ekki að gera við hann enda vélin ónýt. Þannig að við skröltum á bláu druslunni sem er á sumardekkjum í þokkabót. Er einhver þarna úti sem vill gefa okkur bíl? Við erum alveg til í það. ;)
***
Jæja nóg í dag, held ég skelli inn nýrri könnun og ekki vera feimin að tjá ykkur.
HH

3 Comments:

At 10:46 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

bara að láta þig vita að ég kíki daglega hérna inn þó ég sé ekki sú duglegasta að kommenta hjá þér....
hvað "skeði" fyrir bílinn?? dugði ekki startið sem hann fékk um daginn?

kv. Guðlaug Rós frænka þín

 
At 10:50 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Úti er alltaf að snjóa.....yesss...gaman gaman...það skyldi þó ekki verða til þess að maður skellti sér á skíði. Það væri nú bara snilld, svona til tilbreytingar.

Nei ég vil ekki gefa þér bíl...sorry :-( hehe..

Góða skemmtun um helgina...farðu varlega með stelpunum...rakst nefnilega inn á myndasíðu hjá Kristínu Sig á dögunum...nokkrar djammmyndir af ykkur skvísum...say no more...

Lov U
Sigga

 
At 11:10 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Hvenig getur svona nýlegur bíll bara dáið?? Var þetta ekki VW?

Hvað er svo að gerast hjá þér sem þú vilt ekki deila með okkur, ég heimta e-mail ;) þá skal ég segja þér allt sem er að gerast hjá mér ;)

Knús, Kristrún

 

Skrifa ummæli

<< Home