föstudagur, janúar 12, 2007

Láttu mig vera...leiktu við aðra en mig!

Váá ég var í sturtu áðan og fór að hugsa eitthvað um að blogga. Sem betur fer fór ég að hugsa það, því ef ekki hefði ég líklega tapað þar sem ég er að fara út að borða eftir hálftíma! Fjúffff!!
***
En þar sem ég er að fara að borða eftir smá stund, þá verður þetta blogg hálf þunnt og skrifað í fljótheitum, þar sem ég er enn með blautt hár og algerlega ekki búin að hafa mig til.
***
Hefði ég haft tíma hefði þessi pistill verið þunglyndislegur og leiðinlegur...er í einhverju þannig stuði núna, tuð stuði. Ohhh það er svo gaman þegar svoleiðis skap kemur yfir mann.
***
Ég vil minna ykkur á könnunina!! Þrír búnar að kjósa þegar ég kíkti áðan og svei mér þá 2 vinstri grænir og einn samfylkingarmaður...tek það fram að ég hef ekki kosið, en eittvað þarf ég að fara að endurskoða vini mína ;) Híhíhíhíhíhí...nema þetta hafi verið fjölskyldan, já þetta er pottþétt einhver í familíunni...*HÓSSSTIHÓST*
***
Jæja ætla að fara að sétta á mér hárið svo ég verði sæt og fín, þrátt fyrir kíli dauðans á hökunni ;(
Hafið það gott
Rokin

4 Comments:

At 7:55 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Brjálað að gera hjá þér bara....kannast við kíli á hökunni er meðeitt slíkt...bróðir minn spurði mig hvort ég væri með hlaupabóluna *Snökt*

Klikkaðar snjókveðjur að vestan.
Kristín.

 
At 11:13 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Tek þátt í öllum könnunum sem verða á vegi mínum...læt þessa ekki fram hjá mér fara.

Ekki borða yfir þig í "út að borða" í kvöld ;-)

Lov S

 
At 11:19 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Knús og koss, Kristrún

 
At 11:45 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Juminn - Halldóra! Vissirðu að það er framsóknarmaður að lesa bloggið þitt!!

 

Skrifa ummæli

<< Home