laugardagur, desember 23, 2006

Hvað er svona merkilegt við það að vera karlmaður?

Þá er komið að síðasta bloggi fyrir jól. Hef verið með hugann við svo margt og hugsað "þetta verða ég nú að blogga um" en svo eins og þið vitið gerist ekkert.
***
Á morgun er Þorláksmessa og þá tíðskast það víst að eta vel kæsta skötu og auðvitað verður engin undanteknin á því þetta árið. Ávallt sér hún systir mín fyrir því að bjóða familíunni í skötu og ekki er það nú slæmt. Er ég þegar komin með vatn í munn og full eftirvæntingar.
***
Þið sem ekki vitið þá á ég bíl eða sko SP-fjármögnun á hann en Ásgeir rekur hann. Þetta er ekki svo gamall bíll en þvílíkri druslu hef ég ekki ekið áður og þá tel ég samt með Grána gamla og gamla rauða LÖDU-station bílinn hennar Lilju með. En til að gera langa sögu stutta þá stoppaði bílinn enn einu sinni á góðum stað í Kópavogi og var dáinn þar. Ég fer á rúntinn síðaar um kvöldið og fá frænku mína með mér í að gefa bílnum rafmagn og koma honum heim. Hosemaría sko...það munaði ekki miklu að við hefðum orðið úti þetta kvöld. Úti var rigning eins og kom í syndaflóðinu og kuldinn líktist þessum sem kom árið 1918 frostaveturinn mikla. Við reyndum hvað við gátum að finna rafgeyminn (við vissum sko alveg hvar hann var *hóstihóst* það var bara erfitt að finna hann í myrkrinu). Á endanum hringdi ég í manninn minn og bað um smá leiðbeiningar og hann segir "svona komiði bara heim ég redda þessu í fyrramálið". Jahérna hér...þið sem þekkið mig þá hélt ég nú ekki. Þó ég sé ekki með hangandi typpi milli lappanna þá get ég nú alveg gefið bíl smá start og ég kann sko líka að skipta um dekk. Við frænkurnar "dúlluðum" við þetta í smá tíma, tókum nokkra hluti í sundur í húddinu og fundum rafgeyminn á endanum og voila bílinn er sem nýr.
***
Hér er búið að skreyta jólatréið. Jájá degi fyrr en tíðkast en þar sem jólin eru bara smá helgi er nú alveg hægt að henda einu stk jólatréi upp. Það er hið glæsilegasta, eins og annað sem fær að snerta hendur mínar!
***
Fór í ónefnda skóbúð í höfuðborginni og er eitthvað að skoða mig um, þegar skyndilega afgreiðslustúlkan byrjar að kalla á samstarfsmann sinn sem er hinum megin í búðinni "EF EINHVER SEGIR GLEÐILEG JÓL VIÐ MIG EINU SINNI ENN VERÐUR SÁ HINN SAMI MYRTUR"!!!!!! Jiii sú var pirruð maður. Ég þorði ekki fyrir mitt litla líf að versla við hana, sá fyrir mér að gellan myndi hoppa uppá afgreiðsluborðið draga mig þangað upp á hárinu og MYRÐA mig með hælum á einhverjum ljótum skóm. Ekki beint spennandi svona rétt fyrir jólin.
***
Jæja gott fólk veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira. Er að spá að enda þetta svona. Vona svo auðvitað sannarlega að allir eigi gleðileg jól og séu sáttir í hjarta sínu.
Jólaknús
HH

2 Comments:

At 1:46 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Vá, það er ekkert smá stress í sumu fólki. Við hverju býst "búðarfólk" 2 dögum fyrir jól?

Leiðinlegt að heyra með bílinn, ég hefði nú samt örugglega tekið eiginmanninn á orðiu og leift honum að sjá um þetta morguninn eftir ;)

Æðislegt hjá þér að vera búin að setja upp jólatréð.
Úff..o góða skemmtun í skötuni á morgun. Ég held ég hafi flutt frá Ísó aðeins of snemma, lærði aldrei að meta þann hátíðlega fisk.

Knús og koss, Kristrún

 
At 5:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Gleðileg jól dúllan mín!

úff þrjóskan í þér með þennan bíl ég hefði ALDREI nennt þessu og hefði sko látið Magga redda þessu!

Váá ég er alveg hneyksluð á þessari gellu í skóbúðinni...ég hefði sko sagt eitthvað...algjör dóni!


Kv kristín

 

Skrifa ummæli

<< Home