sunnudagur, október 15, 2006

hvað er þetta líf nema andartak sem líður hjá.

Þá er dagur að kveldi kominn og enn ein helgin afstaðin.
Byrjaði helgina í banastuði og skellti mér á tjúttið með Kristínu. Hvert fórum við?? Jú auðvitað Oliver þar sem var opinn reikningur á barnum. Jájá alltaf fínt að komast með Kristínu út...alltaf frítt að drekka. :) Vorum í banastuði og já einhverju púka stuði...buðum svíum uppá íslenskt brennivínsskot, klipum í rassa og dönsuðum þvílíkt flottu dansana á dansgólfinu.
***
Laugardaginn var ég furðu hress enda góð í vatninu undir það síðasta og vorum líka komnar snemma heim að Kristínar mælikvarða.
Þó ég hafi ekki verið þunn var ég frekar þreytt og pirruð eitthvað...held það sé veðrið. Þunglyndisveður dauðans búið að vera þessa helgi og ekkert gaman við það.
Langar að skella mér í frí til Bahamas eða eitthvað álíka þar sem er sól, hiti og afslöppun.
***
Vinnan er ekki í uppáhaldi hjá mér þessa dagana...margt í ólagi og margt ekki gott...Ef maður er óánægður í vinnunni sem er svo stór hluti af lífi manns þá veitir það ekki á gott. Hummm kannski er ekkert þunglyndislegt við veðrið...kannksi er það bara ég.
***
æjjjjá það er mánudagur á morgun og eins gott að rífa sig uppúr þunglyndi og halda áfram með hið daglega líf.
Ég er rokin í heitt bað.
***
HH þunglynda kveður að sinni.

5 Comments:

At 9:58 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Halldóra mín, viltu bara gjöra svo vel að hætta í þessari vinnu fyrr en seinna....ef þetta er að gera þig þunglynda þá er eitthvað verulega mikið að.....þú sem ert alltaf svo lífsglöð og kát...nú göngum við bara í það að fara að gera eitthvað skemmtilegt!!!

Reyndar var ég líka á djamminu á föstudagskvöldið....hefði viljað hitta þig en ég villtist inn á Thorvaldsen og var þar allt kvöldið....greinilega mikið stuð á Oliver....

Heyrumst og sjáumst ;-)
Sigga

 
At 3:53 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sammála Siggu, vinnan versnar bara svo ekki þrauka of lengi.

Æðislegt að heyra í þér um daginn.

Knús og koss, Kristrún

 
At 2:16 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Sammála hér á undan...komdu þér út úr þessari vinnu...það er fátt leiðinlegra en að vera í ömurlegri vinnu því vinnan spilar svo stórt hlutverk í lífinu.

Takk fyrir föstudagskvöldið....ó boy ó boy..það var sko gaman hjá okkur...enda tvær snarklikkaðar saman á ferð hehehe ;) Endurtökum þetta sem fyrst ;)

Kveðja
Kristín.

 
At 8:27 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já Mjög sammála síðustu ræðumönnum....

en smá spurning til ykkar kristínar...ERUÐ ÞIÐ NOKKUÐ BÚNAR AÐ TÝNA SÍMANÚMERINU MÍNU??
Farði bara á tjúttið án þess að hafa mig með það hefur nú örugglega ekki verið voða gaman hjá ykkur... ha!! :) ég hélt að við væru 3amigos...(4 með kalla)

KV. Ein sem bíður heima.... eftir næsta boði á tjúttið

 
At 9:12 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æ snúllan mín!! Þú gleymdist alveg!! þetta var algjör skyndiákvörðun hjá okkur...þú gleymist ekki næst!!

Kv Kristín.

 

Skrifa ummæli

<< Home