miðvikudagur, júlí 19, 2006

það verður huxahalasúpa, nei sveppahalasúpa nei ...

Ég er búin að finna það út hvers vegna ég er svona hrinkalega grömpí og leiðinleg á morgnana. Það er bara veðrið sem fer svona með mann. T.d. í gær þá fór ég mjög seint að sofa (já ég veit, ég bara get ekki sofnað á kvöldin) en samt vaknaði ég hress og kát...eða sko eins hress og ég get verið á morgnana. En það er bara því sólin skein innum gluggann hjá mér. Núna er klukkan 10:40 að morgni og ég er búin að fara út í góðan hjólatrúr og alles. Stefni svo á göngutúr núna líka fyrir hádegi.
***
Var að hringja í Iceland Express því Casu liðið kemur með þeim frá London og hafa bara 45 mínútur á milli véla. Gellan sem svaraði var nú ekki sú liðlegasta, sagði mér ekkert sem ég vissi ekki fyrir. En 45 mín er MJÖG hæpið þar sem tékk inninu lokar 30-45 mín fyrir brottför! shit og þetta er eina vélin frá Stansted þennan dag. En þau ætla engan farangur að taka með, bara handfarangur þannig að krossaputta og vona að þetta takist. Þau tala sko ekki STAKT orð í ensku þannig að þetta verður fróðlegt.
***
Ólafur kominn út í sandkassa í garðinum að leika við einhverja krakka, ekkert smá fínt að geta hent þessum púkum út og þau bara leika sér :)
***
Annað...hummm...brúðkaupsundirbúningur gengur fínt, er orðin smá stressuð, er viss um að gelyma einhverju, en issss þetta verður bara gaman. Erum komin með söngkonu í kirkjuna og líklega band í veisluna þannig að það má búast við stuði ÍHAAA :)
***
Jæja ætla ekki að láta eina góðviðrisdag sumarsins líða án þess að ég njóti hans.
Lifið heil.
HH

5 Comments:

At 9:15 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

úú...nú er ég forvitinn hver mun spila í brúðkaupinu ;)

 
At 9:46 e.h., Blogger Halldóra said...

hvaaa engin sem þorir að tjá sig undir nafni?? Híhíhí þá segi ég ekki ;)

 
At 11:09 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Æ þetta var ég...ætlaði að leiðrétta mig og skrifa forvitin en ekki forvitinn þar sem ég er kvennkyns ;) Og svo ýtti ég óvart á vitlausan takka áður en ég gat sett nafnið mitt undir ;) En þetta er bara ég Halldóra mín hún krissa úr Kópavoginum ;)

 
At 4:20 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Your website has a useful information for beginners like me.
»

 
At 11:24 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Interesting site. Useful information. Bookmarked.
»

 

Skrifa ummæli

<< Home