föstudagur, febrúar 24, 2006

Neiii eyði ekki tíma í að finna fyrirsögn!

Ég skrifa þér með blýant því blek er ekki til...trallalalal...

Hér hjá mér er hvorugt til og því skrifa ég bara á rafrænuformi.

Var á leið í vinnuna í morgun (eins og alla aðra morgna) og hlustaði á ónefndastöð, þar er fólk varla talandi og hvað þá meira, en svo á slaginu 0800 voru fréttir, nú og þeir sem eitthvað hafa verið að fylgjast með þjóðmálunum vita að sjúkra og slökkviliðsmenn hafa boðað til verkfalls verði ekki farið að þeirra kröfum og fréttamaðurinn var að reyna að vera svo fyndinn og sagði "slökkviliðsmenn eru bálillir vegna...." Mér finnst alltaf svo hallærislega aulalegt þegar fréttamenn finna svona orð sem "passa" við eitthvað starfsheiti. Varð bara að koma þessu á framfæri.

Í dag er föstudagur (allavega þegar ég er að skrifa þetta, en kannski ekki þegar þú ert að lesa þetta) og LAAAANGÞRÁÐ helgi að koma, meira að segja löööng helgi því það er vetrarfrí mánudag og þriðjudag, tralllalalalal :) Jii hvað ég er glöð.

Jæja það er kominn matur mest að fá sér enn einu brauðsneiðina, ekkert annað í boði hér (frekar lásí)
Yfir og út í buskann!!

1 Comments:

At 9:54 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ja hérna hér Halldóra Harðardóttir!! Ég verð nú bara aðð segja að ég varð OFUR hissa að kíkja hingað núna !! Ég hef ekki kíkt hingað inn í þónokkuð langan tíma því ég hélt að gellan væri bara ALVEG hætt að blogga!! En NEI...hvað kom eiginlega fyrir bara fullt af bloggum þegar ég kíkji !! Til hamingju með þetta og nú mun ég kíkja mun oftar kæra vinkona ;)

Kveðja frá Ísafirði(er að fara að djamma í kvöld)

Kristín ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home